Thursday, October 11, 2007

Igen = já

Trabant er mjög vinsæll bíll hérna og rauði liturinn...ég hef allavegana oft rekist augun á rauðum trabant. Nema kannski þetta er alltaf sá sami....

(háskóla/sjúkrahúsa svæðið...myndvélin mjög flink)

Annars er það bara þannig að ég kíkti út á miðvikudagsdjammið, annað árið var að klára prófturn og þurftu 'allir' að halda upp á því. Miðvikudagar eru aðaldjamm dagar ef maður ætlar að taka vel á því. Ástæðan fyrir því að það eru svo margir hérna sem búa í sveitum út um allt og þá fara heim um helgar. Maður sér strax hverjir eru ungverjar (fyrir utan það að vera 'ljóta fólkið' ) því þau mæta á föstudögum í skólann með ferðatöskur. Jájá...best að eyða ekki tíma í að fara heim og kippa í töskuna áður enn er farið í lest/bíl. Svo eru stífar æfingar fyrir fótboltamótið um helgina. Gunna er búin að panta sérstaka boli fyrir okkur og ætlum við ekki bara að vinna þetta en vinna þetta með stæl. Svo inn á milli fótboltans og bjórsins kíki ég á bækurnar.


-The new girl, Mariah-

9 comments:

Anonymous said...

skottið mitt....ég skal byrja að kalla þig stínu... svona svo að the new girl mariah festist ekki við þig ;o) promise...

gunna dóra

Anonymous said...

hahaha...engin önnur en Gunna kæmi upp með eitthvað nickname eins og þetta....gott að þú ert ekki að gleyma þér alveg í skólanum og sletta aðeins úr klaufunum það er MJÖG nauðsynlegt er einmitt að fara að gera slíkt hið sama á morgun, handboltadjamm gaman gaman :)

kv. Gerður

Anonymous said...

Greinilegt að þið kunnið að skemmta ykkur! Fær maður einhverja útskýringu á af hverju "Mariah"? ;) luv luv, Hera

Eva Margrét said...

ok þetta er allt í lagi ég fór á draumráðningarsíðu og ólétta boðar bara eitthvað gott. Spennandi tímar framundan og allt mun ganga vel.
tekið af www.draumur.is

Ólétta

Að dreyma að maður sé óléttur er góðs viti. Þetta táknar upphaf á einhverju nýju og spennandi í lífi þínu, jákvæðar breytingar eru í nánd.

Okkur er borgið;)
knús og kossar

Stina Jona said...

jæja...það er gott! en hvað ef þú dreymir að vinkonan þín sé ólétt?!?:)



Hera: Mariah kemur frá frægu 'Mariah Carey' sögunni, ég er viss um að Evu mundi ekki leiðast að segja þér hana:)

Anonymous said...

Æ hvað er gott að þú skemmtir þér stína. Og líka frábært að þú kíkir í bækurnar ;O)
VIð erum bara hress og kát G.B.S var að koma heim af 1fótboltaæfingunni í nýja Liverpool búningnum fær að heyra þar reglulega frá stebba að hann sé ljótur ;O)
Við heyrums Love you
Sigga Magga
Stefán Karl átti einusinni trapant 2held ég meira að segja

Anonymous said...

Kemur alveg hrikalega á óvart að Gunna er bara ekkert að taka þetta mót of alvarlega, HE HE Búin að panta boli og e-ð=)
Allavegana luv u og bið að heilsa=)

Anonymous said...

heyriði... við unnum þetta mót...

ég tapa hvorki í fótbolta eða blaki.. ég bara neita ;o)

kv. iceobese

Anonymous said...

Sæl elsku Stína.
Frábært að vita að þú sért komin til Ungverjalands.
Ég vona að allt gangi frábærlega vel og að þú skorir að minnsta kosti eitt mark í leiknum.
Baráttukveðjur frá Íslandi.

ps. ég á örugglega eftir að koma í heimsókn