Tuesday, October 16, 2007

3.vikan byrjuð.

Ég var að koma heim og ég er búin að vera í efnafræði prófi og biophysics tilraun, klukkan er ekki orðin tíu. Reyndar mjög fljót tilraun hjá mínu hópi en án gríns var prófið sett fyrir 6.45 í morgun...mjög hressandi svo mæta glorhungruð í tilraun.


Þá var þessi helgi mjög merkileg því Ice Obese unnu stelpumótið í fótbolta. Við rústuðum úrslitaleiknum 13-0, leikurinn flautaður af því dómarinn nennti ekki að telja hærra. Sorglegt að segja að fyrri leikurinn okkar á móti þeim fór 0-0. Hérna er mynd af Simonyi tríóinu í upphitunardressinu...Ice Obese flygja vonandi síðar en ég verð að ræna þeim einhversstaðar.

(ég er ekki alveg búin að læra á timer-inn)

Eftir mótið var borðað og svo tók við að fagna sigrinum, eða allavegana við stelpurnar því strákarnir náðu ekki eins góðum árangi. Partý og djamm niðri í bæ á Silence og bíddu annað gott nafn...Basis! Lögðum af stað heim þegar gamla fólkið var að fara ná í sunnudagsblaðið:)

Ég er orðin ansi góð að rata hérna...enda reyni ég alltaf sjálf. Hef reyndar villst einu sinni eða tvisvar sem er bara nauðsynlegt. Svo í gær tók ég nokkrar myndir af Háskóla Sjúkrahús svæðinu...mjög sætt, eins og annar lítill bær. Svo sjáiði tvo læknanemar (Kata og Bjartur) tilbúnir í næsta tíma...skyndihjálp. Ég held að dúkkan lifi þetta af.















Ég fæ svo fyrsta gestinn minn í kvöld. Sá síðast sem ég kvatti á leiðinni og þá í Köben meðan beið fluginu til Budapest. Hann kemur hingað og svo planið að fara til Budapest með honum í einn dag.

6 comments:

Anonymous said...

Þvílíkur kjána tími fyrir próf! Og þó... Illu er víst best af lokið.
Hefur nafnið á fótboltaliðinu eitthvað að gera með hið eytur hressa band Ace of Base?? Eða er þetta eitthvað læknisfræðilegt?
Til hamingju með sigurinn, eitthverstaðar frétti ég að þú hefðir skorað lang flest mörkin ;)

Ívar

Anonymous said...

Til lukku með siguinn skvís, ohhh...hvað ég vildi að ég hefði fengið eitthvað vetrarfrí þá væri aldrei að vita nema ég hefði bara skellt mér með Binna :) en hvernær ert þú væntanleg heim um jólin...var heima fyrir viku og er strax farin að plana og hlakka til að koma heima aftur...hehe

kv Gerður

Eva Margrét said...

knús og kossar frá Rotterdam, mér líður betur að vera svona aðeins nær þér;)

Anonymous said...

hahaha nei ekki beint ívar... en samt gott gisk....

líklegast hefðum við heitið eftir bandi hefðum við heitið...

ríka ljónið... án efa...;o) smá einkahúmor fyrir simonyigengið! ;o)

gunna dóra

Anonymous said...

HALLÓ!

Drifan

Stina Jona said...

...is it me you're looking for?