Wednesday, May 28, 2008

Annar í afmæli

Skemmtilegur dagur...annar í afmæli. Var í prófi í dag sem fór bara mjög vel. Svo styttist í að þetta klárist allt saman hjá mér og ég að fara klára fyrsta árið mitt hérna, ótrúlegt. En afmælisdagurinn minn var nú alveg ágætur hérna í Debrecen þrátt fyrir smá lærdóm. Veðrið var yndislegt 30°C og sól, þá var ekkert annað en að kíkja á Palma í uppáhaldskokteilinn minn hérna sem er Mai Tai í heilum ananasi:o) það er bara eitthvað við það að fá drykkinn í ananas og svo biðja um skeið og skafa restina sem svona 'eftirrétt'. Næsta próf í næstu viku...no time to waste, verður líklegast erfiðasta vikan mín í þessu próftímabili. jeij.

En ég vil bara þakka fyrir afmæliskveðjurnar og ég reyni að drífa mig heim!!:O)


xoxo



1 comment:

Anonymous said...

Sæl Stína og til hamingju með afmælið. Hér er allt búið að skjálfa í dag. Valla vinkona mín á Selfossi ætlaði bara að gista í Reykjavík í nótt með sína fjölsk. Þetta er nú meiri skelfingin. Ég fann aðeins fyrir skálftanum á Borgarspítlanum í dag, það var nú ekki mikið. Ég vona að prófin gangi áfram vel og að þú verðir komin heim eftir bara smá stund hahah, Kærar kveðjur Inga í Tjarnarmýri